Færsluflokkur: Bloggar
Bloggar | 30.3.2009 | 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 12.2.2009 | 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Woody allen er soldið eins og gæsalifur (foie gras), enginn millivegur, fólk annaðhvort elskar eða hatar hann. Í nýjustu mynd sinni Vicky Christina Barcelona fer snilld hans á flug; Katalónskt skáld, í markvissri hefnd á hinum ljóta heimi sem hann býr í, gerir það að ævistarfi sínu að skrifa einhver þau allra fallegustu ljóð sem nokkurn tímann hafa sést á pappír en hefnir sín á heiminum með því að gefa þau aldrei út. Og sviftir þar með heiminn allri þeirri fegurð (sem hann á hvort eð er á ekki skilið) sem í skáldskapnum bý.
Ég flissaði af þessu í gegnum alla myndina, sem var þrælgóð.
Bloggar | 10.2.2009 | 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fæddist með 24 fingur og tær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.2.2009 | 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á horninu hjá mér er dæmigerð dönsk kíosk sem selur allt sem þig gæti vantað, lottó og getraunir, jógúrt og jónubréf, smokka og sælgæti, strætómiða og sígarettur, klámblöð og kampavín, spagettísósur og kaffi, dagblöð og tímarit.
Um daginn stóð ég þarna í röð fyrir framan blaðarekkann og rak þá augun í klámmyndir á dvd sem voru á sértilboði, 3 stykki á 150 kall danskar. Við ansi pena og nánari athugun sá ég að sumar voru allt að 6 klukkustundar langar. Fyrir litlar 150kr gæti ég því fengið 18 klukkustundir af sjónvarpsafþreyingu, spurning hversu hollt það væri fyrir sálina að horfa á klámmyndir í 18 tíma.
Bloggar | 1.2.2009 | 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sem dæmi um flokkspólitíska mengun á Íslandi má benda á að 1 af hverjum 100.000 íslendingum er seðlabankastjóri. Þetta er svipað og morðtíðnin á íslandi*. Það eru sem sagt jafnmiklar líkur á að ég verði gönnaður í drasl í Grafarvoginum og að ég fái að vera óhæf flokkspíka upp á punt í Svörtuloftum
12 ráðherrar þýða 4 á hverja 100.000(morðtíðni í USA)
63 þingmenn þýða 15.8 á hverja 100.000 (morðtíðnin í Rússlandi á góðu ári)
Og ég hef hvorki heimildir né vasareikni til að reikna alla aðstoðarmenn, stjórnarmennina og nefndarmenn sem enginn kýs, nema kannski að flokkurinn fái að gúddera. það mundi sennilega setja okkur langt upp fyrir Kólumbíu (fokking 60 á 100.000, það er sjúkt by the way)
Í fáum orðum má segja að að stjórnarbatteríið á Íslandi sé of stórt, það verður að minnka
*Morð eru blessunarlega fátíð á Íslandi, en lág íbúatala þýðir að 3 manndráp á ári hækkar okkur upp fyrir flestar norðurlandaþjóðir, nema nottla Finnland. Heimild NationMaster
Bloggar | 31.1.2009 | 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tími er kominn til að kæla nepótisma fráfarandi sjálfstæðisflokks og nýfrjálshyggju huxjón Hannesar Hólmsteins sem hefur fengið falleinkun, eftir 17 ár af einkavæðingu, stóryðjustefnu, fjársvelti heilbrigðiskerfis (til að stuðla að einkavæðingu) lítur allt út fyrir að íslendingar séu að fá græn-sósíal demókratíska stjórn. Sem mun spara annarstaðar en í heilbrigðiskerfinu, frysta þær litlu eigur útrásarnauðgaranna sem eftir eru á landinu, reka Oddsson, endurskoða IMF sálarsöluna, hleypa fleiri konum í áhrifastöður og já mjög sennilega afturkalla þennan fáránlega hvalveiðikvóta, sem er soldið fyndinn þegar ég spái betur í það.
Fyrir ykkur með svipaðan gálgahúmor og ég mæli ég með þessu
Ég ætla hinsvegar að láta kæró syngja mig í svefn; hef samt ekki enn komist að hvort ég vilji heyra Maístjörnuna eða bara Nallann.
Bloggar | 27.1.2009 | 22:57 (breytt kl. 22:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Því miður er þetta enn eitt sorglega dæmið um hvað fráfarandi stjórn er úr takt við vilja fólksins í landinu og alþjóðasamfélagið. Hverjum ætla þeir að selja þennan óþverra og hvaða þróunarríkishuxunarháttur er það að leggja útflutningsgreinar og ferðaþjónustu (sem ásamt veitingaþjónustu er önnur stærsta tekjulind þjóðarinnar) í stórhættu fyrir útflutninsvöru sem er óæskileg erlendis? Þetta er kannski álíka gáfulegt og að hefja verslun með þræla í gegnum Ísland og verða rosalega hissa þegar gervöll heimsbyggðin missir andlitið af hneykslan og viðbjóði.
Japanir eru orðnir alltof kúltiveraðir til að kaupa ofmeyrnað beljukjöt með lýsisbragði alla leið frá íslandi, veiða það sjálfir ofaní sína sérvitringa.
Væri sennilega reiðari ef ég hefði ekki fulla trú að að þessi vitleysa verði afturkölluð með löngu tímabæru fráfalli Sjálfstæðismanna úr ríkisstjórn.
IFAW: Undrun og vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.1.2009 | 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að minni persónulegu skoðunn slepptri, sem er að ríkisstjórnin eigi að segja af sér, leysa eigi upp þingið, setja á fót tímabundna neyðarstjórn sem mun rannsaka aðdraganda og afleyðingar bankahrunsins og endurskipuleggja stjórnskipan á Íslandi, þá tel ég að íslenska þjóðin sé orðin svo klofin í afstöðu sinni til stjórnarinnar að henni sé lengur stætt að starfa. Fésbókarar og bloggarar standa á banaspjótum og sýnist hverjum sitt, fólk er hrætt og reitt. Að unglingar séu lamdir í hausinn og blaðamenn gasaðir, mótmælendur forviða á eigin reiði og hræðslu sláist við hljóðmenn Stöðvar2 og matreiðslumenn-og nema á Borginni, hlýtur að fá velmeinandi fólk til að huxa sinn gang.
Sama hver sem ykkar skoðun er, sama hvað flokk þið kjósið, sama hvaða banka þið skuldið mest og sama hvaða ráðamanni þið eruð skild þá verðum við að krefjast þess að lágmarki verði þing rofið og boðað verði til kosninga að vori komandi (og leyfa framsókn að prufa nýja Gíslamarteininn sinn).
Að öðrum kosti verður þjóðin klofnari og báráttan og hræðslan eykst.
Þjóðin var í Alþingisgarðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.1.2009 | 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir utan að það hvað þessi yfirlýsing kemur illa við sérvisku feminismann í mér og ætti í raun heima á 6.áratugnum, eins og reyndar restin af þessum flokki. Þá finnst mér alveg æðislegt að þeir haldi að það nægi að bjóða stelpum í þetta pulsupartý sitt til að geta reddað málunum og svindlað sér enn aftur í ríkisstjórn á 10 prósentunum sínum.
"Sagði Gunnar Bragi Sveinsson að hann vildi ekki standa í vegi fyrir því að fönguleg kona kæmist í stjórn flokksins." Hvað er þetta?? Eru íslensk stjórnmál virkilega á þessu plani.
Ég er sömu skoðunnar og Njörður P. Njarðvík, um að pólitík á íslandi sé framapots-flokkspolitík sem endalaust stingi kjósendur í bakið því stjórnvöld vinna ekki fyrir fólkið heldur láta fólkið vinna fyrir sig.
Njörð má sjá í Silfri Egils hér
Dróg sig til baka úr ritaraslagnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.1.2009 | 22:11 (breytt 27.1.2009 kl. 22:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Veitingastaðir
- Grillið á Sögu Gamla heimillið mitt
- Noma í CPH
- ThePaul í Tivoli
- Michelin í Danmörku
- Bo Bech Stórvinur Grillsins
- Den lille fede
- Prémisse
Kokkadót
- Kokkamyndbönd Kokkaþættir og allskonar vídjó
- Starchefs Allt sem er hipp og kúl
- Meistaramatur á Mbl
- Myndir Bjarna a Grillinu
Bloggarar
Sniðugar síður
- Ljósmyndakeppni.is Fín síða fyrir fótónörda
- vald.org Upplýsandi greinasafn.
- Information liberation The news you're not supposed to know...
- Grænjaxinn Veftímarit um umhverfismál og grænan lífsstíl
- Andspyrna Síðasti anarkistinn á Íslandi
Myndir
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar