24 tíma læknirinn

Hef verið aumur í öxlinni síðast liðna daga, má kannski best lýsa sem sinaskeðabólgu tilkomna vegna þess að ég hef flakað of mikið af fisk í vikunni. Kveinka mér yfirleitt ekki en vantaði verkjalyf eftir vinnu í kvöld og þau fást í 7-11 hérna allan sólarhringinn. Kom glaðvaskur og skellti minni reglulegu pönntun uppá 10 bjóra patrónu á borðið og spurði hvort hann ættí ekki íbúfen eða svoliss. Jújú það var til en þá sá ég Voltaren í hillunni og spurði hvort það væri ekki hentugra við svona vöðva-og beinverkjum? Varð þá þess skyndilega uppvís að ég var að tala við perka frá Svíþjóð um tvítugt með gervidemant í eyranu sem er að vinna í sjoppu á nóttunni og ætti hvorki að spyrja né þyggja læknisráð frá. Horfðumst í augu sekúndubrot og huxuðum báðir "þessi maður er kjáni" þegar ég greiddi fyrir þessa vafasömu blöndu áfengis og verkjalyfja.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.